PERSPECTA

News from every angle

← All sources

RÚV

Iceland · 11493 articles

Center(0)
LeftCenterRight
ruv1h ago

Segir samning við ESB verða að tryggja fullt forræði yfir fiskveiðistjórninni

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir það skýrt af hálfu forystu ríkisstjórnarinnar að það sé skilyrði að Ísland nái skýrri niðurstöðu varðandi bæði sjávarútveg og landbúnað ef til aðildarviðræðna við Evrópusambandið kemur. Hún segist meðal annars vera vongóð um að samningar geti náðst sem standi vörð um hagsmuni Íslands í sjávarútvegi. „Það eru breyttir tímar. Heimsmyndin er breytt og Evrópusambandið er gjörbreytt frá því fyrir fimmtán árum þegar Ísland lagði af stað í þenna...

ruv3h ago

Vinsælt leikfang veldur áhyggjum

Vinsælt skynjunarleikfang veldur foreldrum áhyggjum og sumar tegundir hafa verið innkallaðar. Leikskólakennari segist hafa fengið nóg af slíku dóti þegar það sprakk í höndum barns hennar. Leikfangið er eitt það vinsælasta á landinu og gengur undir ýmsum nöfnum, til dæmis Squeezy eða Squishy, og á íslensku hefur verið talað um skynjunarleikfang eða kreistileikfang. Það þarf að vera var um sig, segir leikskólakennari eftir að skynjunarleikfang sprakk í höndum barns hennar og úr því lak ókennile...

ruv3h ago

Xabi Alonso hafði betur gegn Arbeloa í Lundúnaslag

Xabi Alonso og Alvaro Arbeloa voru samherjar bæði í Liverpool og Real Madríd. Þeir mættust í kvöld á hliðarlínunni.IMAGO Chelsea vann 3-2 sigur á Fulham í lokaleik 1. umferð í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Þetta var fyrsti deildarleikur Chelsea undir stjórn Spánverjans Xabi Alonso og fyrsti deildarleikur Fulham undir stjórn Alvaro Arbeloa. Sá fyrrnefndi stýrði Real Madríd á síðustu leiktíð þar til hann var rekinn og Arbeloa tók þá við Madrídingum og stýrði út leiktíðina. Joao Pedr...

ruv5h ago

Grunur um myglu raskar skólastarfi í Hlíðarskóla

Í Hlíðarskóla eru 20 nemendur sem ekki ná að blómstra í hefðbundnu skólastarfi. Hópurinn er viðkvæmur og má ekki við miklu raski. Það voru því undrandi foreldrar sem mættu á skólasetningu í morgun og fengu að heyra að önnur af tveimur skólabyggingum yrði ekki í notkun fyrst um sinn. Grunur kom upp um myglu í efra húsinu fyrir þó nokkru síðan. Fasteignir Akureyrarbæjar tóku húsnæðið út en fundu ekki. Það var svo á miðvikudaginn sem lögn sprakk í eldhúsinu og í ljós kom mygla á bakvið innréttin...

ruv6h ago

„Snýst fyrst og fremst um hvernig stjórnarhættir FIFA eru“

Knattspyrnusamband Íslands, KSÍ, sendi í gær ásamt öðrum knattspyrnusamböndum á Norðurlöndunum frá sér yfirlýsingu um stöðu mála hjá FIFA. Í yfirlýsingunni kom fram að Gianni Infantino, forseta sambandsins, væri ekki lengur treystandi og nauðsynlegt væri að gera úttekt á stjórnarháttum og skipulagi FIFA. Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ, ræddi yfirlýsinguna í Morgunútvarpi Rásar 2 í morgun og segir norrænu samböndin fyrst og fremst vilja sjá til þess að samskonar stjórnarhættir sjáist ekki a...

ruv6h ago

35 þúsund hafa greitt atkvæði – búið að lengja opnunartíma hjá sýslumanni

Um 35 þúsund hafa kosið utan kjörfundar í þjóðaratkvæðagreiðslunni um aðildarviðræður við ESB hjá sýslumönnum, í sendiráðum og hjá ræðismönnum. Þar af eru rúmlega 23 þúsund kjósendur á höfuðborgarsvæðinu. Sigríður Kristinsdóttir sýslumaður segir kjörsókn betri en í alþingis- og forsetakosningunum 2024. Hún telur að kjörsókn verði svipuð og í forsetakosningunum 2020 þegar 40 þúsund kusu utan kjörfundar á höfuðborgarsvæðinu. „Út þessa viku verður opið í Hlíðarsmára til klukkan níu alla daga fra...

ruv8h ago

Trump vill tvöfalda tolla á kanadísk ökutæki

Bandaríkjaforseti vill tvöfalda tolla á kanadísk ökutæki. Ekki sér fyrir endann á deilum Bandaríkjanna og Kanada um tollamál sem hafa færst í aukana að undanförnu. „Frá og með 1. janúar 2027 verða tollar á alla bíla og vörubíla, stóra sem smáa, auk bílavarahluta og stáls, hækkaðir í 50 prósent,“ skrifaði Donald Trump forseti Bandaríkjanna á samfélagsmiðli sínum Truth Social í dag. Bandaríkin leggja nú 25 prósenta toll á þann hluta kanadískra ökutækja sem ekki er framleiddur í Bandaríkjunum og...

ruv9h ago

Vaxtahækkun á „miklu greiðari leið“ í greiðslubyrði eftir vaxtadóminn

Reikna má með því að greiðslubyrði 40 milljóna króna húsnæðisláns hækki um sjö þúsund krónur á mánuði eftir að Seðlabankinn hækkaði stýrivexti um 0,25 prósentustig í síðustu viku, úr 7,75% í 8%. Landsbankinn varð á föstudag fyrstur stóru viðskiptabankanna þriggja til að tilkynna um hækkun vaxta. Fastir vextir á verðtryggðum íbúðalánum hækka um 0,1 prósentustig. Fastir vextir á nýjum óverðtryggðum lánum til 12 mánaða hækka um 0,20 prósentustig en 0,1 prósentustig á lánum til 36 mánaða. Breytil...

ruv9h ago

Blóð úr brotaþola fannst á vettvangi í Reykholtsmálinu

Skýrslutökur héldu áfram í Reykholtsmálinu í dag. Starfsmenn lögreglu og læknar gáfu skýrslur. Sex Íslendingar, fimm karlar og ein kona, eru ákærð fyrir að halda manni föngnum á heimili sínu í Reykholti í Bláskógabyggð og beita hann harkalegu ofbeldi til þess að hafa af honum fé í apríl 2024. Vonast var til að skýrslutökum myndi ljúka í dag en það reyndist ekki mögulegt vegna erfiðleika með túlkun á vitnisburði erlendra lækna. Ekki hægt að rekja DNA af sakborningum til vopna á vettvangi Fyrst...

ruv10h ago

Ráða fólki frá því að ganga Fimmvörðuháls

Útivistarfélögin Ferðafélag Íslands og Útivist og Björgunarsveitin Dagrenning á Hvolsvelli vara fólk við hættulegum aðstæðum á gönguleiðinni yfir Fimmvörðuháls. Þau ráða fólki eindregið frá göngu yfir hálsinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félögunum. Gil og sprungur hafa opnast á leiðinni síðustu ár samhliða því að jökullinn hefur hopað. Einnig hafa myndast brattar brekkur og skriður á hluta leiðarinnar milli Baldvinsskála og Fimmvörðuhálsskála þar sem áður var snjór eða jökulís. Einnig ...

ruv10h ago

Samið við Heilsuvernd um rekstur þriðja hjúkrunarheimilis Akureyrar

Fyrirtækið Heilsuvernd hefur samið um rekstur á nýju hjúkrunarheimili í Þursaholti á Akureyri. Fyrirtækið rekur fyrir bæði hjúkrunarheimilin í bænum. Áætlað er að þriðja hjúkrunarheimili Heilsuverndar rísi í Þursaholti, norðan við smábátahöfnina á Akureyri. Reitir vann útboð um bygginguna, sem verður níu þúsund og eitt hundruð fermetrar með rými fyrir 140 íbúa. Seinna útboðið snerist svo um rekstur heimilisins, þar varð Heilsuvernd ofan á en þau reka fyrir Hlíð og Lögmannshlíð á Akureyri. Mik...

ruv11h ago

„Það veit enginn almennilega hvernig á að gera þetta“

Grunnskólar voru settir víða í morgun. Skólaárið er hafið en ekki liggur fyrir hvernig námsmatið verður. Tölustafir taka við af bókstöfum en kerfið verður annað en það sem fólk vandist áður. Jóhann Skagfjörð Magnússon, skólastjóri í Garðaskóla í Garðabæ, segir það áskorun að innleiða nýtt námsmatskerfi og að framkvæmdin liggi ekki fyrir fyrr en rúmlega fjórðungur verður liðinn af skólaárinu. „Við fengum þær fréttir skömmu eftir verslunarmannahelgi að menntamálaráðherra væri búin að gefa það ú...

ruv13h ago

Fresta þarf skýrslutökum vegna vandræða með túlkun

Fresta þurfti skýrslutökum af erlendum læknum sem meðhöndluðu brotaþola í Reykholtsmálinu í dag. Illa gekk fyrir túlk að þýða læknisfræðileg hugtök vitnisins. Þeir erlendu læknar sem gefa áttu skýrslu eru á Möltu en fjallað hefur verið um að brotaþoli í málinu fékk aðhlynningu þar eftir að hafa orðið fyrir ofbeldi á Íslandi. Sex Íslendingar, fimm karlar og ein kona, eru ákærð fyrir að halda manni föngnum á heimili sínu í Reykholti í Bláskógabyggð og beita hann harkalegu ofbeldi til þess að ha...

ruv14h ago

Ástin sem eftir tilnefnd til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs

Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs voru stofnuð árið 2002 og hafa verið veitt árlega frá árinu 2005. Þau eru ein virtustu menningarverðlaun Norðurlandanna og eru veitt norrænni leikinni kvikmynd eða heimildarmynd. Tilnefningarathöfn fer fram á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Haugasundi þriðjudaginn 25. ágúst. Íslenska kvikmyndin Ástin sem eftir er er tilnefnd til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs, en samtals hljóta sex kvikmyndir tilnefningu. Hlynur Pálmason leikstjóri er tilnefndur til Kvikm...

ruv14h ago

Loftmengun vegna Sæbrautarstokks líklega vanmetin

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur telur áhrif loftmengunar vegna Sæbrautarstokks vera vanmetin og að rík þörf sé á góðum mengunarvörnum. Einnig þurfi að kanna betur hvort mengaður jarðvegur á framkvæmdasvæði geti komist í snertingu við grunnvatn og ofanvatn og skoða mögulegar mótvægisaðgerðir. Þetta kemur fram í umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um Sæbrautarstokk í skipulagsgátt. Þar segir að niðurstöður úr færanlegri mælistöð árin 2007 og 2009 hafi sýnt svipaða loftmengun og við Grensásv...

ruv14h ago

Dimma snýr aftur með nýjan söngvara og trommara

Rokkhljómsveitin Dimma sendi frá sér nýtt lag í dag og kynnti um leið nýjan söngvara og trommara í hljómsveitinni. Þeir eru Ivan Mendez, sem hefur sungið með hljómsveitinni Sólförum, og Skúli Gíslason, sem hefur barið trommurnar fyrir SIGN. Stefán Jakobsson hætti í Dimmu í apríl eftir að hann var sýknaður af ákæru um líkamsárás. Hann sagði fólk sem hann taldi vera vini sína hafa brugðist sér á öllum stigum málsins. Maðurinn sem kærði Stefán fyrir líkamsárás tengist eiginkonu bassaleikara hljó...

ruv16h ago

Bíll varð alelda

Eldur kviknaði í bíl á Víðimel í Vesturbæ Reykjavíkur í morgun. Bíllinn varð alelda og steig mikill svartur reykur til himins. Slökkviliðsmenn voru fljótir á vettvang og slökktu eldinn. Enginn slasaðist. Reykurinn steig til himins og mátti sjá hann víða að. Eldurinn náði þó ekki að breiðast út.

ruv16h ago

Sprengdu bát sem þeir sögðu flytja fíkniefni

Yfirstjórn Bandaríkjahers í Mið- og Suður-Ameríku greindi frá því í morgun að herinn hefði skotið á og eyðilagt bát sem talinn er hafa verið notaður til að smygla fíkniefnum til Bandaríkjanna. Tveir voru um borð og voru báðir drepnir. Bandaríkjaher hefur ítrekað ráðist á báta sem grunur leikur á að séu notaðir við fíkniefnasmygl. Yfir 200 hafa verið drepnir í slíkum árásum frá því í september í fyrra. Þær eru hluti af harðari aðgerðum gegn meintum smyglurum. Hart hefur verið deilt á árásirna...

ruv17h ago

Luxon: Ekki má umbera þann skaða sem börn verða fyrir af völdum samfélagsmiðla

Nýsjálenska ríkisstjórnin kynnir í dag frumvarp til laga sem ætlað er að banna samfélagsmiðlanotkun barna undir 16 ára aldri. Nýja-Sjáland bætist þar með í stækkandi hóp landa sem vilja halda börnum frá miðlum á borð við TikTok og Instagram, þar sem nágrannaríkið Ástralía reið á vaðið í desember. Forsætisráðherrann Christopher Luxon segir ekki hægt að umbera þann skaða sem unga kynslóðin geti orðið fyrir af völdum illviðráðanlegs utanaðkomandi þrýstings á samfélagsmiðlum, sem væru auk þess áv...

ruv18h ago

Jarðskjálftahrina við Reykjanestá

Jarðskjálftahrina er hafin við Reykjanestá. Það var á fimmta tímanum í nótt sem jarðskjálftum tók að fjölga og um klukkan sex varð skjálfti sem mældist af stærðinni 2,6. Jarðskjálftahrinur eru algengar á Reykjanesi.RÚV / Grétar Þór Sigurðsson Minney Sigurðardóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, áréttaði í samtali við fréttastofu í morgun að skjálftarnir kæmu til af völdum flekahreyfinga og að hrinur væru algengar á þessum slóðum.

ruv2h ago

Vona að kjötmjöl geri gæfumuninn á Hólasandi

Kjötmjöli verður dreift á um þúsund hektara lands í sumar til að græða upp auðnir. Sérfræðingar hjá ríkisstofnuninni Landi og skógi segja áburðinn hafa gefið góða raun sunnanlands og nú er í fyrsta sinn dreift í stórum stíl norðan heiða. Þorlákur Páll Jónsson, vélamaður hjá Landi og skógi, er búinn að fara hring eftir hring og fram og til baka á dráttarvélinni í sumar, eins og sést á mynstrinu sem hann hefur skilið eftir sig á Hólasandi, sandflæminu milli Mývatns og Húsavíkur. Sérfræðingar hj...

ruv3h ago

Dregið úr leitinni við Stuðlagil þegar myrkva tekur

Maðurinn sem Jökulsá á Brú, í Stuðlagili á Jökuldal, fyrr í dag er enn ófundinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kristmundi Stefáni Einarssyni, lögreglustjóranum á Austurlandi. Í tilkynningunni segir að leitinni verði haldið áfram þar til viðkomandi finnst en að dregið verði úr henni þegar myrkva taki í kvöld. Henni verði framhaldið af fullum krafti þegar birti í fyrramálið. Að aðgerðum koma m.a. lögregla, björgunarsveitir, sérsveit ríkislögreglustjóra, Landhelgisgæslan, Rauði krossinn, sj...

ruv4h ago

Stríðið í Íran leggst sérstaklega þungt á ferðaþjónustu

Forna borgin Yazd er kölluð hjarta gullna þríhyrningsins svokallaða í Íran. Gullni þríhyrningurinn tengir saman þrjár sögufrægar borgir, Yazd, Shiraz og Isfahan. Yazd er á heimsminjaskrá UNESCO og ferðamenn frá öllum heimshornum flykktust þar að. Nú eru fáir á ferli á götum borgarinnar og hótelin tóm. Mehdi Mirzaei, eigandi hótels í borginni, segir nýleg stríð í landinu hafa haft mikil áhrif á erlenda ferðaþjónustu. „Og ástandið er ekki að batna. Margir samstarfsmenn okkar eru í örvæntingarfu...

ruv5h ago

Bandaríkin boða frekari refsiaðgerðir gegn írönskum stjórnvöldum

Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa boðað harðar refsiaðgerðir gegn ríkjum og fyrirtækjum sem halda áfram viðskiptum við Íran meðan á stríðinu stendur. Aðgerðunum hefur þó enn ekki verið hrint í framkvæmd. Scott Bessent, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, segir hótunina vera viðvörun. Ríki fái ákveðinn frest til að draga úr viðskiptum sínum við Íran áður en refsiaðgerðirnar taki gildi. Í samtali við fjölmiðla segir Bessent aðgerðirnar geta meðal annars komið til með að beinast að viðskiptum með olíu...

ruv6h ago

Leit stendur enn við Stuðlagil

Leit stendur enn að manni sem féll Jökulsá á Brú, í Stuðlagili á Jökuldal, eftir hádegi. Það staðfestir Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Austurlandi, sem segist að öðru leyti engar upplýsingar geta veitt umfram það sem fram kom í tilkynningu lögreglu fyrr í dag. Lögreglu barst tilkynning um að maður hefði fallið í Jökulsá á Brú í Stuðlagili klukkan 13:15. Þyrla Landhelgisgæslunnar og fjölmennt björgunarlið var strax kallað út og er enn við leit. Maðurinn sem féll ...

ruv7h ago

Unglingadrykkja „vill stundum fylgja svona hátíðum“

„Menningarnótt gekk vel í heildina. Það náttúrlega var heilmikið af fólki, þrátt fyrir rok og rigningu. Það sem við erum mjög ánægð með er hvað það var góð stemning og það var góður andi yfir öllu,“ segir Guðrún Halla Jónsdóttir forvarnarfulltrúi Reykjavíkurborgar. „Hvað varðar ungmenni að þá var svolítil áfengisneysla sem vill stundum fylgja svona hátíðum.“ Framkvæmdastjóri Samfés sagði við fréttastofu í gær að tilfinning starfsfólks félagsmiðstöðva væri sú að unglingadrykkja hefði aukist. G...

ruv8h ago

Opnunartími Sundhallarinnar skertur: „Þetta verkefni hefur stækkað“

Opnunartími Sundhallarinnar í Reykjavík verður skertur á virkum dögum frá og með morgundeginum og þar til viðgerðum á búningsklefum laugarinnar lýkur. Framkvæmdir hafa staðið yfir í klefunum um nokkra hríð. Á meðan hafa karlar notað gamla búningsklefann á neðri hæð hússins – gamla kvennaklefann – sem er mjög þröngur. Konur hafa notað báða útiklefana. Þessir klefar rúma samanlagt aðeins um 60 manns. Nú þegar skólasund hefst að nýju þarf því að loka lauginni fyrir almenningi þann tíma dags sem ...

ruv9h ago

Vegurinn aftur orðinn holóttur þremur dögum eftir klæðningu

Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar, segir farir sínar ekki sléttar, eftir misheppnaðar vegaframkvæmdir á veginum um Kaldármela á Snæfellsnesi í síðustu viku. Hann segir að klæðning sem var lögð á kafla vegarins á fimmtudag hafi þegar verið orðin holótt þegar hann átti aftur leið um veginn á sunnudag. Hann mun, ásamt Unni Brá Konráðsdóttur, sveitarstjóra Borgarbyggðar, funda með forstjóra Vegagerðarinnar á þriðjudag til að ræða framkvæmdina og nauðsynlegar úrbætur. Kristinn lýsir þ...

ruv9h ago

Egyptarnir sviku loforð og koma ekki til Íslands fyrir HM í janúar

Ekkert verður af æfingaleikjum Íslands og Egyptalands í janúar í aðdraganda Heimsmeistaramótsins í handbolta. Egyptarnir sviku loforð sín að sögn Jóns Halldórssonar formanns HSÍ. Handkastið greindi frá því í morgun að leikirnir, sem áttu að fara fram 7. og 9. janúar, myndu ekki fara fram. Jón Halldórsson, formaður HSÍ, staðfestir þetta í samtali við RÚV og segir Egyptana einfaldlega hafa svikið loforð sín og að það séu mikil vonbrigði. Samningar höfðu náðst milli HSÍ og egypska handboltasamb...

ruv10h ago

Vara við hættu á Fimmvörðuhálsi

Útivistarfélögin Ferðafélag Íslands og Útivist og Björgunarsveitin Dagrenning á Hvolsvelli vara fólk við hættulegum aðstæðum á gönguleiðinni yfir Fimmvörðuháls. Gil og sprungur hafa opnast á leiðinni síðustu ár samhliða því að jökullinn hefur hopað. Einnig hafa myndast brattar brekkur og skriður á hluta leiðarinnar milli Baldvinsskála og Fimmvörðuhálsskála þar sem áður var snjór eða jökulís. Einnig hafa komið í ljós snjóbrýr þar sem snjó vetrarins hefur tekið upp. Undir þeim renna jökulár. ...

ruv11h ago

Markmið Rússa að valda sem mestum hryllingi

Það er alltaf hægt að gera betur í stuðningi við Úkraínu, segir Friðrik Jónsson, sendiherra Íslands gagnvart Úkraínu. Friðrik tekur þátt í fundi bandalags hinna viljugu í Kyiv í dag. Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands, er í sinni fyrstu heimsókn í Úkraínu. Hann stýrir fundinum ásamt kanslara Þýskalands og forseta Frakklands sem taka þátt í gegnum fjarfundarbúnað. Það gerir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Íslands einnig. „En ég sit í herberginu til þess að vera með fána Íslands á ...

ruv12h ago

Opnar sig um stormasama tíma og sögusagnir hjá Stjörnunni: „Eitt allsherjar fíaskó“

Jón Þór Hauksson var nýverið látinn fara sem þjálfari Stjörnunnar í Bestu deild karla í fótbolta. Jón Þór var annar þjálfarinn sem var rekinn frá liðinu í sumar og stýrði hann Garðbæingum aðeins í 68 daga. Skagamaðurinn lýsir tíma sínum sem algjöru fíaskói og segir það hafa verið ljóst frá fyrsta degi að hann væri ekki velkominn í Garðabæ. Þá segir hann að það þurfi illan hug til að spinna upp sögusagnir sem fóru á kreik í kjölfar þess að hann var látinn fara. Hann segir sögusagnir skammarleg...

ruv13h ago

Hlutabréf í Sýn lækka eftir að Síminn hætti við kaup á fjölmiðlum

Hlutabréfaverð í Sýn hefur lækkað um fimm prósent í morgun á sama tíma og verðmæti hlutabréfa í Símanum hefur aukist um tvö og hálft prósent. Þetta gerist morguninn eftir að tilkynnt var að ekkert yrði af kaupum Ása, móðurfélags Símans, á fjölmiðlum Sýnar á borð við Vísi og Bylgjuna. Frekar lítil viðskipti eru að vísu á bak við breytingarnar í morgun. Bréf í Sýn hafa gengið kaupum og sölum fyrir átta milljónir og bréf í Símanum fyrir 45 milljónir. Sýn og Síminn greindu frá því í mars að samko...

ruv14h ago

Ástin sem eftir er tilnefnd til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs

Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs voru stofnuð árið 2002 og hafa verið veitt árlega frá árinu 2005. Þau eru ein virtustu menningarverðlaun Norðurlandanna og eru veitt norrænni leikinni kvikmynd eða heimildarmynd. Tilnefningarathöfn fer fram á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Haugasundi þriðjudaginn 25. ágúst. Íslenska kvikmyndin Ástin sem eftir er er tilnefnd til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs, en samtals hljóta sex kvikmyndir tilnefningu. Hlynur Pálmason leikstjóri er tilnefndur til Kvikm...

ruv14h ago

Holland verður ekki með í Eurovision 2027

Hollenska ríkisútvarpið tilkynnti í morgun að það ætli ekki að taka þátt í Eurovision á næsta ári. Stjórnendur segja að keppnin geti ekki lengur talist hlutlaus vegna viðbragða við stríðinu á Gaza. „Átök á alþjóðavettvangi hafa óneitanlega haft áhrif á keppnina og grafið undan hlutleysi hennar. Eurovision er orðin vettvangur sundrungar,“ segir Taco Zimmerman framkvæmdastjóri. Holland var á meðal fimm ríkja sem sniðgengu keppnina í ár. Hin fjögur eru Ísland, Írland, Spánn og Slóvenía. Áhorfend...

ruv14h ago

Dimma snýr aftur með nýjan söngvara og trommara

Rokkhljómsveitin Dimma sendi frá sér nýtt lag í dag og kynnti um leið nýjan söngvara og trommara í hljómsveitinni. Þeir eru Ivan Mendez, sem hefur sungið með hljómsveitinni Sólförum, og Skúli Gíslason, sem hefur barið trommurnar fyrir SIGN. Stefán Jakobsson hætti í Dimmu í apríl eftir að hann var sýknaður af ákæru um líkamsárás. Hann sagði fólk sem hann taldi vera vini sína hafa brugðist sér á öllum stigum málsins. Maðurinn sem kærði Stefán fyrir líkamsárás tengist eiginkonu bassaleikara hljó...

ruv16h ago

„Því lengur sem þú horfir, því meira sérðu“

„Myndlæsisþjálfun er ekki flókin, hún snýst bara um að þjálfa augað og hugann og spyrja sig spurninga. Um leið og maður staldrar við og gefur sér tíma þá opnast svo margt. Það að geta notið myndlistar er svo mikil lífsgæði. Myndlist er ekki bara fyrir fáa, hún er fyrir okkur öll," segir Ragnheiður Vignisdóttir, fræðslu- og útgáfustjóri Listasafns Íslands. Eftir margra ára starf sem leiðbeinandi á safni sem tók á móti þúsundum nemenda á hverju ári þar sem hún talaði stanslaust í klukkutíma og ...

ruv16h ago

Auglýsa tvö embætti dómara við Landsrétt

Dómsmálaráðuneytið auglýsti tvö embætti dómara við Landsrétt laus til umsóknar á föstudag. Annað embættið er laust þar sem Ásgerður Ragnarsdóttir landsréttardómari var skipuð dómari við Hæstarétt í síðustu viku. Til stendur að skipa í það embætti hið fyrsta eftir að dómnefnd um hæfi umsækjenda skilar umsögn sinni. Setja á dómara í hitt embættið tímabundið til 28. febrúar 2029 vegna leyfis dómara. Einnig á að setja í það embætti sem fyrst. Hvaða kröfur eru gerðar til landsréttardómara? Umsækj...

ruv18h ago

Þjálfarateymi Víkings hljóp til styrktar Ingvari

Þjálfarateymi Víkings hljóp í Reykjavíkurmaraþoninu til styrktar Ingvari Jónssyni, markverði liðsins, sem greindist með krabbamein fyrr á árinu. Hér er rætt við Sölva Geir Ottesen þjálfara en þeir hlupu hálfmaraþon. „Ég hef aldrei hlaupið svona mikið áður. Þetta verður bara að koma í ljós. Við byrjum á rólegu tempói og sjáum hvernig þetta fer. Ég er ekkert smeykur við hlaupið sjálft. Ég er bara smeykur við dagana eftir,“ sagði Sölvi. Teymið náði að hlaupa á undir tveimur tímum. „Þetta var erf...

ruv18h ago

Handtekinn fyrir að munda hníf en reyndist vera að tína blóm

Lögreglumenn handtóku mann í miðborginni eftir að tilkynning barst um að hann væri að munda þar hníf. Maður sem neitaði að yfirgefa baklóð lögreglustöðvarinnar við Hlemm fékk að gista klefa í staðinn.RÚV / Ragnar Visage Við yfirheyrslu kom á daginn að þarna var á ferð erlendur ferðamaður sem notaði hnífinn við að tína blóm. Hann var þá látinn laus að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Maður sem ógnaði öðrum með eggvopni í því umdæmi lögreglunnar sem sinnir Breiðholti og ...

ruv2h ago

Segja upp skólaliðum og útvista störfum

Hópur skólaliða í Reykjavík hefur fengið uppsagnarbréf og störfum þeirra hefur verið útvistað. Formaður Sameykis segir borgina ekki í neinum takti við raunveruleikann. Eitt af áhersluverkefnum meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks sem tók við í vor var hagræðing. Á verkefnalista meirihlutans er m.a. að fækka millistjórnendum, innleiða áhættustýringu, auka skilvirkni, fylgjast betur með útgjöldum, setja stjórn yfir eignasafn borgarinnar og hagræða um milljarð á ári. Borg...

ruv3h ago

Aftur vann Fram Blika í sjö marka leik

Fram vann 4-3 sigur á Breiðabliki á Kópavogsvelli í kvöld. Blikar komust í 1-0 en Fram í 4-1. Fyrri leikur liðanna í Bestu deildinni í sumar lyktaði einnig með 4-3 sigri Fram. Eftir að Davíð Ingvarsson kom Breiðabliki 1-0 yfir með marki á 6. mínútu hófst markaveisla Framara í fyrri hálfleik. Fram skoraði nefnilega fjögur mörk gegn engu eftir þetta í hálfleiknum og um markaskorun sáu Róbert Hauksson, Haraldur Einar Ásgrímsson, Vuk Óskar Dimitrijevic og Kennie Chopart. Blikar hresstust í seinni...

ruv4h ago

Breytingarnar óþægilegar því 10. bekkur sé svo mikilvægur

„Mér líst vel á það en það er óþægilegt því maður er svo vanur hinu og maður er að fara í 10. bekk, sem er svo mikilvægur,“ segir Kristrún Áróra Eydísar- og Diðriksdóttir, 10. bekk Seljaskóla, um nýja námsmatskerfið sem hefur verið gagnrýnt af kennurum og skólastjórnendum. „En ég er bara að reyna að komast í menntaskóla og svo lengi sem maður fær fínar einkunnir þá er þetta allt í lagi,“ bætir hún við. „Ég veit ekki mikið um þetta strax. Við fengum ekki mikla útskýringu á þessu. Ég er svolíti...

ruv6h ago

Óvissa um hvenær aðalmeðferð í Reykholtsmálinu heldur áfram

Óvíst er hvort aðalmeðferð í svokölluðu Reykholtsmáli heldur áfram á miðvikudag eða fimmtudag. Sjötta degi aðalmeðferðar lauk í dag þar sem læknar og starfsmenn lögreglu gáfu skýrslur. Sex Íslendingar, fimm karlar og ein kona, eru ákærð fyrir að halda manni föngnum á heimili sínu í Reykholti í Bláskógabyggð og beita hann harkalegu ofbeldi til þess að hafa af honum fé í apríl 2024. Vonast var til að skýrslutökum lyki í dag. Fjórar skýrslur eru þó eftir sem taka á af þremur maltneskum læknum og...

ruv6h ago

Ber hún ábyrgð á dauða barna sinna eða brást bandarískt heilbrigðiskerfi?

Lindsay Clancy er ljósmóðir frá Duxbury í Massachusetts. Hún og eiginmaður hennar, Patrick Clancy, eignuðust þrjú börn: Coru, 5 ára, Dawson, 3 ára, og Callan, 8 mánaða. Lindsay er ákærð fyrir að ráða börnunum bana á heimili þeirra. Réttarhöld yfir henni hófust í júlí. Málið hefur vakið mikla athygli um allan heim og milljónir hafa fylgst með réttarhöldunum í beinni útsendingu. Málið vekur ekki aðeins spurningar um sekt eða sakleysi Lindsayjar heldur umræðu um geðheilbrigðisþjónustu nýbakaðra ...

ruv7h ago

Ekki búið að taka ákvörðun um þátttöku Íslands í Eurovision næsta vor

Stjórn RÚV hefur ekki tekið ákvörðun um það hvort Ísland taki þátt í Eurovision í Búlgaríu á næsta ári. Þetta staðfestir Stefán Jón Hafstein, stjórnarformaður RÚV. Hann segir Eurovision „sáralítið verið rætt“ innan stjórnarinnar. Næsti stjórnarfundur verður haldinn í lok september. Stefán segir óvíst hvort þátttaka Íslands verði rædd á fundinum þar sem dagskrá fundarins liggi ekki fyrir. „Minn skilningur er sá að það er ekki komin nein dagsetning á hvenær síðasti séns er til að láta vita um þ...

ruv8h ago

Los Bomboneros y sus bombasticos spila Tómas R.

Það eru tíu ár eru síðan Los Bomboneros byrjuðu að hittast og spila latínmúsík frá Kúbu og Kólumbíu. Sveitin er skipuð Sigrúnu Kristbjörgu Jónsdóttur básúnuleikara, Daníel Helgasyni og Alexöndru Kjeld sem spila á kontrabassa og syngja, Kristofer Rodrigez Svönusyni á slagverk og Matthíasi Hemstock á trommur. Platan er afrakstur af því að Tómas gaf sveitinni frjálsar hendur til að velja úr 40 ára tónsmíðasafni sínu og útsetja – kynslóðaskipti þar sem hljóðfæraleikarar 30-40 árum yngri en Tómas ...

ruv9h ago

Skólaganga palestínskra barna í stöðugri hættu

Stjórnvöld í Ísrael hafa fyrirskipað niðurrif fjölda palestínskra skóla á hernumda Vesturbakkanum. Til stendur að rífa niður skólana og reisa landtökubyggðir í staðinn. Nemendur segjast lifa í stöðugum ótta um að hver skóladagur verði sá síðasti. Í frétt norska ríkisútvarpsins NRK er greint frá raunum Sadeel Shatat, sextán ára gamallar stúlku frá Palestínu. Hún gengur í Zeif-stúlknaskólann í Masafer Yatta, í suðurhluta Hebron-héraðs á hernumda Vesturbakkanum. Shatat segist aldrei hafa upplifa...

ruv9h ago

Egyptar sviku loforð og koma ekki til Íslands fyrir HM í janúar

Ekkert verður af æfingaleikjum Íslands og Egyptalands í janúar í aðdraganda heimsmeistaramótsins í handbolta. Egyptar sviku loforð sín að sögn Jóns Halldórssonar formanns HSÍ. Handkastið greindi frá því í morgun að ekki yrði af leikjunum sem áttu að fara fram 7. og 9. janúar. Jón Halldórsson, formaður HSÍ, staðfestir þetta við RÚV og segir Egypta einfaldlega hafa svikið loforð sín og það séu mikil vonbrigði. Samningar náðust milli HSÍ og egypska handboltasambandsins um að íslenska liðið kæmi...

ruv10h ago

Maður féll í Stuðlagil

Björgunarsveitir á Austurlandi hafa verið kallaðar út vegna tilkynningar um að maður hafi fallið í Stuðlagil. Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út, að sögn Jóns Þórs Víglundssonar upplýsingafulltrúa Slysavarnafélagsins Landsbjargar. „Við erum að bregðast við tilkynningu um að einstaklingur hafi farið í ána,“ segir Jón Þór. Útkallið hafi borist skömmu eftir klukkan 13:00. „Allar björgunarsveitir á Austurlandi voru kallaðar út á hæsta forgangi.“ Frekari upplýsingar liggja ekki fyrir ...

ruv11h ago

Náðu ekki saman um ýmis ákvæði – „Sýn uppfyllti allar forsendur“

„Við hefðum aldrei klárað samningana nema það væru góðir samningar fyrir Sýn og hluthafa félagsins. Við vorum ekki að komast að samkomulagi þannig að það yrði niðurstaðan, þannig að þetta er þá staðan sem komin er upp,“ segir Herdís Dröfn Fjeldsted forstjóri Sýnar. Viðræður slitnuðu milli Sýnar og Ása, móðurfélags Símans, í gærkvöld. Félögin hafa átt í viðræðum um möguleg kaup Ása á fjölmiðlum Sýnar, á borð við Vísi og Bylgjuna, síðan í mars. Ásar sögðu í tilkynningu til fjölmiðla í dag að ef...

ruv13h ago

Skýrslutökum frestað vegna vandræða með túlkun

Skýrslutökum af erlendum læknum sem meðhöndluðu brotaþola var frestað í Reykholtsmálinu í dag. Illa gekk fyrir túlk að þýða læknisfræðileg hugtök vitnisins. Læknarnir sem gefa áttu skýrslu eru á Möltu. Greint hefur verið frá því að brotaþoli fékk aðhlynningu þar eftir að hafa verið beittur ofbeldi á Íslandi. Sex Íslendingar, fimm karlar og ein kona, eru ákærð fyrir að halda manni föngnum á heimili sínu í Reykholti í Bláskógabyggð og beita hann harkalegu ofbeldi í því skyni að hafa af honum fé...

ruv13h ago

70% félaga í Visku vilja halda ESB-viðræðum áfram

Sjö af hverjum tíu félagsmönnum í Visku eru hlynnt því að Ísland haldi áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Þetta er niðurstaða könnunar sem félagið gerði meðal félagsmanna. 70 prósent segjast hlynnt, 22 prósent andvíg og 7 prósent hafa ekki gert upp hug sinn. Félagar voru spurðir spurningarinnar: Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) ertu því að Ísland haldi áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið? Könnunin var gerð í júlí en unnið úr henni í ágúst, að loknum sumarfríum. 54 prósent segjas...

ruv14h ago

„Markmiðið er að fjölga störfum hér á Íslandi“

Flugstörf verða ekki færð úr landi með kaupum Icelandair á tæplega helmingshlut í Fly Play Europe á Möltu, þó að lítill hluti starfsemi félagsins færist þangað. Þetta segir Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair. Hann vonar að óánægja Félags íslenskra atvinnuflugmanna með kaupin bitni ekki á kjaraviðræðum félaganna. „Við höfum verið í endurnýjun á flotanum hérna á Íslandi og erum að taka við fjölmörgum nýjum Airbus-vélum í flotann núna á næstu árum. Það er heljarinnar verkefni,“ segir Bogi. „...

ruv14h ago

Líkur á að Holland sniðgangi Eurovision aftur

AVROTROS, hollenska sjónvarpsstöðin sem hefur séð um þátttöku í Eurovision síðustu ár, ætlar að sniðganga keppnina á næsta ári. Holland var ekki með í keppninni í ár og nú er ákvörðun um þátttöku á næsta ári komin á borð NPO sem eru yfirsamtök hollenskra ríkismiðla. AVROTROS tilkynnti í morgun að það ætli ekki að taka þátt í Eurovision á næsta ári. Stjórnendur segja að keppnin geti ekki lengur talist hlutlaus vegna viðbragða við stríðinu á Gaza. „Átök á alþjóðavettvangi hafa óneitanlega haft ...

ruv15h ago

Búist við að skýrslutökur klárist í dag

Skýrslutökur halda áfram í Reykholtsmálinu og er gert ráð fyrir að þeim ljúki í málinu í dag. Starfsmenn lögreglu og læknar gefa skýrslur í dag. Sex Íslendingar, fimm karlar og ein kona, eru ákærð fyrir að halda manninum föngnum á heimili sínu í Reykholti í Bláskógabyggð og beita hann harkalegu ofbeldi til þess að hafa af honum fé í apríl 2024. Náist að klára skýrslutökur í dag getur málflutningur í málinu hafist á morgun. Þá ætti að skýrast hvaða refsingar verður krafist. Að málflutningi lok...

ruv16h ago

Áhyggjur af EES-samningnum sem heyrast ekki hér

„Í Noregi hefur atvinnulífið alltaf verið mjög hlynnt aðild að Evrópusambandinu, en hér er stór hópur fyrirtækja á móti, auk þess sem Høyre, frjálslyndi íhaldsflokkurinn í Noregi hefur ávallt verið hlynntur ESB-aðild, á meðan Sjálfstæðisflokkurinn virðist vera harður á móti,“ segir Alstadheim. Hann hefur í talsverðan tíma fylgst með umræðunni hér á landi í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um næstu helgi, og var staddur hér í síðustu viku. Alstadheim hefur áhugavert sjónarhorn á þessa umræ...

ruv17h ago

Rigning um land allt

Það rignir og blæs á landsmenn í dag. Mest rignir á Suðaustur- og Vesturlandi þar sem útlit er fyrir talsverða rigningu. Veðrið gengur þó niður í kvöld og á morgun er útlit fyrir rólegri vind og takmarkaða úrkomu. Veðurspáin er svohljóðandi: Austan og suðaustan 8-15 metrar á sekúndu, en norðlægari vestantil. Rigning, talsverð um tíma suðaustan- og vestanlands, en vestlægari og styttir smám saman upp undir kvöld. Suðvestlæg eða breytileg átt, 3-10 metrar á sekúndu á morgun. Dálítil rigning suð...

ruv18h ago

Þjálfarateymi Víkings hljóp til styrktar Ingvars

Þjálfarateymi Víkings hljóp í Reykjavíkurmaraþoninu til styrktar Ingvari Jónssyni, markverði liðsins, sem greindist með krabbamein fyrr á árinu. Hér er rætt við Sölva Geir Ottesen þjálfara en þeir hlupu hálfmaraþon. „Ég hef aldrei hlaupið svona mikið áður. Þetta verður bara að koma í ljós. Við byrjum á rólegu tempói og sjáum hvernig þetta fer. Ég er ekkert smeykur við hlaupið sjálft. Ég er bara smeykur við dagana eftir,“ sagði Sölvi. Teymið náði að hlaupa á undir tveimur tímum. „Þetta var erf...

ruv19h ago

Ebólafaraldurinn geisar áfram af miklum krafti

Ebólafaraldurinn sem geisar í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó hefur kostað yfir 2.600 manns lífið, samkvæmt upplýsingum frá stjórnvöldum sem birtar voru í gær. Frá jarðaför konu sem lést úr ebólu í Ituri-héraði í Austur-Kongó.EPA / DIEUDONNE DIROLE Fjöldi staðfestra smita er kominn yfir 5.500. Þetta er sautjándi ebólafaraldurinn sem herjar á Kongó og er hvort tveggja sá skæðasti og umfangsmesti hvað snertir fjölda tilfella. Sameinuðu þjóðirnar hafa varað við þessari hröðu útbreiðslu og segja einn...