ruv
Skýrslutökum frestað vegna vandræða með túlkun
By Fréttastofa RÚV
Skýrslutökum af erlendum læknum sem meðhöndluðu brotaþola var frestað í Reykholtsmálinu í dag. Illa gekk fyrir túlk að þýða læknisfræðileg hugtök vitnisins. Læknarnir sem gefa áttu skýrslu eru á Möltu. Greint hefur verið frá því að brotaþoli fékk aðhlynningu þar eftir að hafa verið beittur ofbeldi á Íslandi. Sex Íslendingar, fimm karlar og ein kona, eru ákærð fyrir að halda manni föngnum á heimili sínu í Reykholti í Bláskógabyggð og beita hann harkalegu ofbeldi í því skyni að hafa af honum fé...