PERSPECTA

News from every angle

ruv

Ráða fólki frá því að ganga Fimmvörðuháls

By Fréttastofa RÚV

Útivistarfélögin Ferðafélag Íslands og Útivist og Björgunarsveitin Dagrenning á Hvolsvelli vara fólk við hættulegum aðstæðum á gönguleiðinni yfir Fimmvörðuháls. Þau ráða fólki eindregið frá göngu yfir hálsinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félögunum. Gil og sprungur hafa opnast á leiðinni síðustu ár samhliða því að jökullinn hefur hopað. Einnig hafa myndast brattar brekkur og skriður á hluta leiðarinnar milli Baldvinsskála og Fimmvörðuhálsskála þar sem áður var snjór eða jökulís. Einnig ...