ruv
Dimma snýr aftur með nýjan söngvara og trommara
By Fréttastofa RÚV
Rokkhljómsveitin Dimma sendi frá sér nýtt lag í dag og kynnti um leið nýjan söngvara og trommara í hljómsveitinni. Þeir eru Ivan Mendez, sem hefur sungið með hljómsveitinni Sólförum, og Skúli Gíslason, sem hefur barið trommurnar fyrir SIGN. Stefán Jakobsson hætti í Dimmu í apríl eftir að hann var sýknaður af ákæru um líkamsárás. Hann sagði fólk sem hann taldi vera vini sína hafa brugðist sér á öllum stigum málsins. Maðurinn sem kærði Stefán fyrir líkamsárás tengist eiginkonu bassaleikara hljó...