ruv
Auglýsa tvö embætti dómara við Landsrétt
By Fréttastofa RÚV
Dómsmálaráðuneytið auglýsti tvö embætti dómara við Landsrétt laus til umsóknar á föstudag. Annað embættið er laust þar sem Ásgerður Ragnarsdóttir landsréttardómari var skipuð dómari við Hæstarétt í síðustu viku. Til stendur að skipa í það embætti hið fyrsta eftir að dómnefnd um hæfi umsækjenda skilar umsögn sinni. Setja á dómara í hitt embættið tímabundið til 28. febrúar 2029 vegna leyfis dómara. Einnig á að setja í það embætti sem fyrst. Hvaða kröfur eru gerðar til landsréttardómara? Umsækj...