ruv
Óvissa um hvenær aðalmeðferð í Reykholtsmálinu heldur áfram
By Fréttastofa RÚV
Óvíst er hvort aðalmeðferð í svokölluðu Reykholtsmáli heldur áfram á miðvikudag eða fimmtudag. Sjötta degi aðalmeðferðar lauk í dag þar sem læknar og starfsmenn lögreglu gáfu skýrslur. Sex Íslendingar, fimm karlar og ein kona, eru ákærð fyrir að halda manni föngnum á heimili sínu í Reykholti í Bláskógabyggð og beita hann harkalegu ofbeldi til þess að hafa af honum fé í apríl 2024. Vonast var til að skýrslutökum lyki í dag. Fjórar skýrslur eru þó eftir sem taka á af þremur maltneskum læknum og...