ruv
„Markmiðið er að fjölga störfum hér á Íslandi“
By Fréttastofa RÚV
Flugstörf verða ekki færð úr landi með kaupum Icelandair á tæplega helmingshlut í Fly Play Europe á Möltu, þó að lítill hluti starfsemi félagsins færist þangað. Þetta segir Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair. Hann vonar að óánægja Félags íslenskra atvinnuflugmanna með kaupin bitni ekki á kjaraviðræðum félaganna. „Við höfum verið í endurnýjun á flotanum hérna á Íslandi og erum að taka við fjölmörgum nýjum Airbus-vélum í flotann núna á næstu árum. Það er heljarinnar verkefni,“ segir Bogi. „...