ruv
„Því lengur sem þú horfir, því meira sérðu“
By Fréttastofa RÚV
„Myndlæsisþjálfun er ekki flókin, hún snýst bara um að þjálfa augað og hugann og spyrja sig spurninga. Um leið og maður staldrar við og gefur sér tíma þá opnast svo margt. Það að geta notið myndlistar er svo mikil lífsgæði. Myndlist er ekki bara fyrir fáa, hún er fyrir okkur öll," segir Ragnheiður Vignisdóttir, fræðslu- og útgáfustjóri Listasafns Íslands. Eftir margra ára starf sem leiðbeinandi á safni sem tók á móti þúsundum nemenda á hverju ári þar sem hún talaði stanslaust í klukkutíma og ...