ruv
Vegurinn aftur orðinn holóttur þremur dögum eftir klæðningu
By Fréttastofa RÚV
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar, segir farir sínar ekki sléttar, eftir misheppnaðar vegaframkvæmdir á veginum um Kaldármela á Snæfellsnesi í síðustu viku. Hann segir að klæðning sem var lögð á kafla vegarins á fimmtudag hafi þegar verið orðin holótt þegar hann átti aftur leið um veginn á sunnudag. Hann mun, ásamt Unni Brá Konráðsdóttur, sveitarstjóra Borgarbyggðar, funda með forstjóra Vegagerðarinnar á þriðjudag til að ræða framkvæmdina og nauðsynlegar úrbætur. Kristinn lýsir þ...