PERSPECTA

News from every angle

ruv

Vinsælt leikfang veldur áhyggjum

By Fréttastofa RÚV

Vinsælt skynjunarleikfang veldur foreldrum áhyggjum og sumar tegundir hafa verið innkallaðar. Leikskólakennari segist hafa fengið nóg af slíku dóti þegar það sprakk í höndum barns hennar. Leikfangið er eitt það vinsælasta á landinu og gengur undir ýmsum nöfnum, til dæmis Squeezy eða Squishy, og á íslensku hefur verið talað um skynjunarleikfang eða kreistileikfang. Það þarf að vera var um sig, segir leikskólakennari eftir að skynjunarleikfang sprakk í höndum barns hennar og úr því lak ókennile...