PERSPECTA

News from every angle

ruv

Vona að kjötmjöl geri gæfumuninn á Hólasandi

By Fréttastofa RÚV

Kjötmjöli verður dreift á um þúsund hektara lands í sumar til að græða upp auðnir. Sérfræðingar hjá ríkisstofnuninni Landi og skógi segja áburðinn hafa gefið góða raun sunnanlands og nú er í fyrsta sinn dreift í stórum stíl norðan heiða. Þorlákur Páll Jónsson, vélamaður hjá Landi og skógi, er búinn að fara hring eftir hring og fram og til baka á dráttarvélinni í sumar, eins og sést á mynstrinu sem hann hefur skilið eftir sig á Hólasandi, sandflæminu milli Mývatns og Húsavíkur. Sérfræðingar hj...