PERSPECTA

News from every angle

ruv

Aftur vann Fram Blika í sjö marka leik

By Fréttastofa RÚV

Fram vann 4-3 sigur á Breiðabliki á Kópavogsvelli í kvöld. Blikar komust í 1-0 en Fram í 4-1. Fyrri leikur liðanna í Bestu deildinni í sumar lyktaði einnig með 4-3 sigri Fram. Eftir að Davíð Ingvarsson kom Breiðabliki 1-0 yfir með marki á 6. mínútu hófst markaveisla Framara í fyrri hálfleik. Fram skoraði nefnilega fjögur mörk gegn engu eftir þetta í hálfleiknum og um markaskorun sáu Róbert Hauksson, Haraldur Einar Ásgrímsson, Vuk Óskar Dimitrijevic og Kennie Chopart. Blikar hresstust í seinni...