ruv
Ekki búið að taka ákvörðun um þátttöku Íslands í Eurovision næsta vor
By Fréttastofa RÚV
Stjórn RÚV hefur ekki tekið ákvörðun um það hvort Ísland taki þátt í Eurovision í Búlgaríu á næsta ári. Þetta staðfestir Stefán Jón Hafstein, stjórnarformaður RÚV. Hann segir Eurovision „sáralítið verið rætt“ innan stjórnarinnar. Næsti stjórnarfundur verður haldinn í lok september. Stefán segir óvíst hvort þátttaka Íslands verði rædd á fundinum þar sem dagskrá fundarins liggi ekki fyrir. „Minn skilningur er sá að það er ekki komin nein dagsetning á hvenær síðasti séns er til að láta vita um þ...