ruv
Ebólafaraldurinn geisar áfram af miklum krafti
By Fréttastofa RÚV
Ebólafaraldurinn sem geisar í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó hefur kostað yfir 2.600 manns lífið, samkvæmt upplýsingum frá stjórnvöldum sem birtar voru í gær. Frá jarðaför konu sem lést úr ebólu í Ituri-héraði í Austur-Kongó.EPA / DIEUDONNE DIROLE Fjöldi staðfestra smita er kominn yfir 5.500. Þetta er sautjándi ebólafaraldurinn sem herjar á Kongó og er hvort tveggja sá skæðasti og umfangsmesti hvað snertir fjölda tilfella. Sameinuðu þjóðirnar hafa varað við þessari hröðu útbreiðslu og segja einn...