ruv
Bíll varð alelda
By Fréttastofa RÚV
Eldur kviknaði í bíl á Víðimel í Vesturbæ Reykjavíkur í morgun. Bíllinn varð alelda og steig mikill svartur reykur til himins. Slökkviliðsmenn voru fljótir á vettvang og slökktu eldinn. Enginn slasaðist. Reykurinn steig til himins og mátti sjá hann víða að. Eldurinn náði þó ekki að breiðast út.