ruv
Egyptarnir sviku loforð og koma ekki til Íslands fyrir HM í janúar
By Fréttastofa RÚV
Ekkert verður af æfingaleikjum Íslands og Egyptalands í janúar í aðdraganda Heimsmeistaramótsins í handbolta. Egyptarnir sviku loforð sín að sögn Jóns Halldórssonar formanns HSÍ. Handkastið greindi frá því í morgun að leikirnir, sem áttu að fara fram 7. og 9. janúar, myndu ekki fara fram. Jón Halldórsson, formaður HSÍ, staðfestir þetta í samtali við RÚV og segir Egyptana einfaldlega hafa svikið loforð sín og að það séu mikil vonbrigði. Samningar höfðu náðst milli HSÍ og egypska handboltasamb...